16.10.2007 | 04:12
Ætli ég verði núna kölluð rasisti?
Ég fór á djammið síðasta laugardagskvöld
sem er kannski ekki í frásögur færandi
nema fyrir þá sök að ég fer ekki nema svona
einu sinni á ári
Mér finnst miklu skemmtilegra að vera heima,
borða góðan mat, dunda mér og prjóna!
Ég verð alltaf jafn hissa þegar ég fer
hvað mikið er af fullu fólki á djamminu
Ég hitti þó skemmtilegt fólk
og ég og vinkona mín sem fór með mér
vorum talsvert að spjalla við frábær hjón
og sátum við borðið hjá þeim
Það kom maður að borðinu
og hlammaði sér á milli hjónanna
enda leist honum greinilega vel á konuna
sem er mjög myndarleg
Eiginmaðurinn segir eitthvað við manninn
sem ég heyrði ekki
en ég segi eitthvað á þá leið
að það sé óþarfi að maðurinn sé að troða sér á milli þeirra
Þá segir eiginmaðurinn:
Æ, það er allt í lagi. Þetta er bara pólverji!
Ég er enn að hlæja að þessu
og á trúlega að skammast mín fyrir það
Meginflokkur: Stjórnmál og samfélag | Aukaflokkar: Dægurmál, Lífstíll, Menning og listir | Breytt s.d. kl. 04:24 | Facebook
Athugasemdir
Flott myndasaga.
Georg Eiður Arnarson, 16.10.2007 kl. 10:39
fyndin saga og yndislegar kisumyndir - ekkert til að skammast sín fyrir
halkatla, 16.10.2007 kl. 14:02
Hehehehehe þetta VAR fyndið. Og skemmtilegar myndir og texti.
Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 16.10.2007 kl. 16:24
Takk öll og gott að ég þarf ekkert að skammast mín
Margrét St Hafsteinsdóttir, 17.10.2007 kl. 00:41
....Þetta er fyndið ! Ég alla vega hló hahahaha...
Sunna Dóra Möller, 17.10.2007 kl. 09:43
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.