23.12.2010 | 02:55
Nútíma texti við gamalt jólalag - Og allir syngja með!
Nú er Gunni á nýjum jeppa
nú eru að koma jól
Sigga er sér alveg að sleppa
í oggulitlum kjól.
Pabbi er í eldhúsinu
og honum er svo heitt.
Rauðvín þambar og í sósu hellir
og sparar ekkert neitt.
Mamma hún í ógnarbasli
á með dressið sitt.
Fljótur Siggi faldaðu núna
nýja pilsið mitt!
Kötturinn er svo undirförull
í búrinu lepur skjótt
dýsæta súpu í bolluskál
sem yljar honum fljótt.
Jólatré í stofu stendur
í slifur gráum lit
Afi gamli í sófa situr
og bara alveg bit.
nú eru að koma jól
Sigga er sér alveg að sleppa
í oggulitlum kjól.
Pabbi er í eldhúsinu
og honum er svo heitt.
Rauðvín þambar og í sósu hellir
og sparar ekkert neitt.
Mamma hún í ógnarbasli
á með dressið sitt.
Fljótur Siggi faldaðu núna
nýja pilsið mitt!
Kötturinn er svo undirförull
í búrinu lepur skjótt
dýsæta súpu í bolluskál
sem yljar honum fljótt.
Jólatré í stofu stendur
í slifur gráum lit
Afi gamli í sófa situr
og bara alveg bit.
Lag: Nú er Gunna á nýjum skónum
Texti: Margrét St. Hafsteinsdóttir.
Meginflokkur: Stjórnmál og samfélag | Aukaflokkar: Dægurmál, Ljóð, Spaugilegt | Facebook
Athugasemdir
Góð
Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 23.12.2010 kl. 17:18
:-) jolakveðja
Jón Arnar, 25.12.2010 kl. 00:26
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.