12.6.2007 | 01:52
Ég á mér draum og páfinn er ekki í honum
Ég vildi svo innilega að við ættum engin samskipti við páfagarð. Mér líst bara ekkert á þennan siðapostula kaþólskra og margra annarra sem tilheyra kristnum söfnuðum. Hvað eru svona karl sem dæmi að vera með yfirlýsingar um kvenréttindamál, giftingu samkynhneigðra og fóstureyðingar? Veit ekki betur en þessir páfar séu ógiftir og hafi aldrei verið við kvenmann kenndir svo vitað sé, nema kannski í leynum. Og afstaða þeirra til samkynhneigðra er mjög varasöm svo ekki sé meira sagt og allt annað en kærleiksrík.
Páfinn og hans áhangendur standa í vegi fyrir sönnum mannréttindum á margan hátt, með afstöðu sinni til samkynhneigðra og kvenréttinda. Undir þetta taka fordómafullir afturhaldsseggir kristinnar trúar og hrópa hallelúja og finnst þessi karl voða merkilegur. Hann er hvorki meiri né minni en ég og þú og ætti ekki að hafa þetta vald sem hann hefur, þar sem hann tilheyrir ákveðnum trúarbrögðum. Hann flytur annað slagið ræður sem milljónir hlusta á og skelfast eða fyllast lotningu. Hvað veit hann til dæmis um fólk sem býr við ömurleg kjör, komandi úr svona vernduðu umhverfi, með gull og gersemar allt í kringum sig? Hvað með allan þennan auð sem fylgir kaþólsku kirkjunni og öðrum kirkjum? Hvað er eiginlega kristilegt við þessa auðsöfnun? Svo er saga kaþólsku kirkjunnar ekki upp á marga fiskana og slóðin blóði drifin, vegna kúgunar og drápa í nafni guðs og allskonar valdníðslu.
Síðan sé ég alls ekki tilganginn með klaustrinu hérna. Þar sem nunnurnar dunda sér við handverk og biðja fyrir okkur íslendingum. Væri ekki betra að þær væru í öðru landi þar sem virkilega ríkir neyð og reyna að hjálpa til þar í verki? Páfanum finnst voða gott að við höfum nunnurnar. (Skrifaði pistil um nunnur hérna á síðunni minni ekki alls fyrir löngu og kíkið á hann ef þið hafið áhuga.)
Ég á mér stóran draum og hann er svona:
Ég vil engin trúarbrögð og að þau leggist af. Ég vil að sá auður sem kirkjur heimsins hafa safnað verði notaður til að byggja upp samfélög sem hafa orðið illa úti vegna stríðsrekstur og sjúkdóma sem dæmi. Ég vil að sérstakur sjóður verði settur á laggirnar fyrir þolendur kynferðislegs ofbeldis af valdamönnum innan kirkjunnar og annarra. Ég vil að fénu verði varið til menntunar og uppbyggingar á mannlegri reisn.
Minn Guð er góður og er óháður trúarbrögðum.
|
Afhenti páfa trúnaðarbréf |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
Meginflokkur: Stjórnmál og samfélag | Aukaflokkar: Bloggar, Dægurmál, Lífstíll, Menning og listir, Trúmál og siðferði, Vinir og fjölskylda | Breytt s.d. kl. 02:07 | Facebook


andmenning
andres08
arh
astan
astroblog
audurproppe
benna
berg65
berglindnanna
bergthora
blekpenni
brandarar
braxi
bubot
cakedecoideas
domubod
drhook
eggmann
egillrunar
einarorneinars
ernafr
estersv
eyjann
fosterinn
frisk
gammon
gattin
gdh
geirr
georg
gudnyanna
gudrunmagnea
gullaeinars
gurrihar
halkatla
halo
heidah
helgaluthersdottir
hildurhelgas
hjaltirunar
hross
huldumenn
jaj
jarnar
jenfo
jenni-1001
jensgud
jogamagg
katrinsnaeholm
kiza
kjartan
krizziuz
ktomm
larahanna
larusg
laugatun
lehamzdr
leifurl
liljabolla
magnusthor
markusth
martasmarta
mediumlight
nimbus
nonniblogg
orvitinn
pallblondal
palmig
partners
peturhenry
polites
prakkarinn
rannveigh
robertb
saragumm
savar
siggith
sigurbjorns
sigurgeirorri
sindri79
skarfur
skessa
skinkuorgel
skonsan
steinibriem
stinajohanns
stjornuskodun
sunnadora
svanurg
svanurmd
svartfugl
svarthamar
svartinaggur
tara
tofraljos
tryggur
vantru
vefritid
veravakandi
vest1
vga
vitale
what
yngvii
zeriaph
baldurkr
evropa
curvychic
naflaskodun
kt
sattekkisatt
thorthunder
tryggvim
valgardur
thorsteinnscheving





Athugasemdir
Amen systir! Sendiherra í Vatíkanið á kostnað íslenskra skattborgara? Svívirða.
Róbert Björnsson, 12.6.2007 kl. 04:07
Nunnurnar í Karmelklaustinu í Hafnarfirði hafa hjálpað mörgum hérlendis með fyrirbænum sínum, við skulum ekki gera lítið úr því. Með því að iðaka trú og bænir senda þær kærleiksbylgjur frá sér sem flæða um allan heim og skapar jafnvægi á milli góðs og ills. Fólk sem helgar sig bænum og trúarlífi hefur því mun meira vægi en nokkurn getur órað fyrir. Við mennirnir þurfum mikið aðhald til að iðka kærleikan í okkur, flestir finna það hjá trúarsöfnuðum, öðrum er nokkuð sama, það fer sem fer og örfáir eru hæfir til þess að rækta kærleikan með sér án þess að hafa stuðning frá samfélaginu.
Samfélög um guð eru gerð af mönnunum og ber þess merki í fé- og valdagræðgi, þannig hefur það alltaf verið og mun alltaf verða.
Ester Sveinbjarnardóttir, 12.6.2007 kl. 04:46
Að segja að kærleikur sé eitthvað sem kemur bara í gegnum trú er þvæla
Það er akkúrat ekkert sem getur verið ástæða fyrir því að við höfum sendiherra í páfagarði, zero sendiherra
Eigum við að senda sendiherra á Benni Hinn... eða bara allt svona lið sem biður bænir sem sendir kærleiksbylgjur um allan heim, eða eru þetta fordómabylgjur..
það er rétt hjá þér að fólk sem helgar sig trú og bænum hefur mikið vægi en mjög oft eru það ekki góðir hlutir sem koma frá þessu liði... fordómar á fordóma ofan.
DoctorE (IP-tala skráð) 12.6.2007 kl. 09:15
Ég myndi ekki vilja sjá heiminn trúarbragðalausan, ég geri mér samt grein fyrir að flest stríð hafa hafist einmitt vegna trúarbragða.
Mín ósk væri sú að mannkynið lærði umburðarlyndi.
Ragnheiður , 12.6.2007 kl. 10:11
minn Guð er ekki trúarbrögð, hann er Kærleikur til alls lífs
Ljós til þín
steina
Steinunn Helga Sigurðardóttir, 12.6.2007 kl. 13:41
Róbert: Takk og já, ótrúlegt að við íslenskir skattborgarar séum látnir borga fyrir svona vitleysu.
Ester: Það er fullt af fólki hérna með bænahringi óháða trúarreglum og söfnuðum og þeir hafa líka hjálpað fjölda fólks. Það fólk er bara venjulegt fólk eins og ég og þú sem er í þannig bænahópum. Viss um að nunnurnar eru ágætis manneskjur en sé ekki alveg tilganginn í því að þær séu hérna og lifa í einangrun og lifa á frjálsum framlögum og sínu eigin handverki. Þær ættu að vera úti í samfélaginu og gera þörf verk, eða bara vera á stöðum þar sem virkilega eru hörmungar og aðstoða fólk fyrst þær kjósa þetta svokalla kærleiksríka líf. Svo eru nunnur bundnar við bókstafstrú margar hverjar og ekki er það góð trú að mínu mati og hlýtur að lita kærleiksboðskapinn og bænirnar. Mér finnst nunnur ekki vera merkilegri manneskjur heldur en hver annar. Bara mín skoðun.
Doctor: Já kærleikurinn er algjörlega óháður trúarbrögðum. Góður punktur hjá þér með fordómabylgjurnar, því við ættum alltaf að skoða hvað við erum að senda frá okkur þegar við hugsum til fólks.
Hrossengill: Fyrir mér er trú og trúarbrögð ekki það sama. Trúarbrögð standa mikið fyrir hefðum og siðum sem eru okkur mannfólkinu oft fjötur um fót. Ég myndi vilja sjá milliveg farinn í þessum málum. Það er gott fyrir alla að hafa trú á hinu góða sem dæmi. Held að Guð sleppti okkur ekki svo glatt þótt engin væru trúarbrögðin. Trúarbrögð mynda oft fjötra og leitin að sannleikanum hlýtur að krefjast frelsis til að hugsa og akta án hafta sem gera okkur verri ef eitthvað er eins og sagan segir okkur.
Steina: Sammála þér. Kærleikur og víðsýni, skynsemi og þekking, er leið hinna upplýstu.
Margrét St Hafsteinsdóttir, 12.6.2007 kl. 14:50
Alveg sammála þér Margrét. Annars má benda fólki sem er að pæla í bænum að mikið hefur verið rannsakað um mátt bæna, enda mikið af peningum í guðabissnesnum.Þær rannsóknir sem eru framkvæmdar á vísindalegan hátt, hafa þó ekki bent til að bænin hjálpi nokkuð. Aftur á móti er talið hjálpa að fá sér hund. Fullt af kærleik sem kemur án skuldbindinga. Það ógeðslegasta sem ég veit er þegar kristilegir söfnuðir eru að safna peningum fyrir þróunarlöndin, síðan fær fólk í þessum löndum ekki hjálp nema taka kristna trú. Það er margt ljótt í kristilegu siðgæði, en þetta er eitt það ljótasta finnst mér.
síðan á náttúrulega kaþólska kirkjan mikla sök á útbreiðslu AIDS í Afríku, þar sem þeir banna notkun smokka.
Ásta Kristín Norrman, 12.6.2007 kl. 18:51
Ég er alveg á því að bæn geti hjálpað sjúkum EN bara ef sá sjúki er trúaður og veit að fólk er að biðja fyrir honum... hugurinn ber mann hálfa leið eins og sagt er.
DoctorE (IP-tala skráð) 12.6.2007 kl. 19:25
Sammála er ég þér að mestu leyti Margrét. Reyndar vissi ég ekki að þú aðhylltist trúleysi (trúandi á engla). En þetta vatikanfyrirbæri mætti nú missa sig. Það held ég að Sússi léti nú eitthvað heyrast ef hann sæi allt pírumpárið, glingrið og allar skilkihúfurnar í kringum það. En nunnurnar finnst mér að megi nú vera þar sem þær eru og gera það sem þær vilja (eins og bara allir) á meðan ekki er verið að ganga á rétt næsta manns. En kirkjur mætti alveg leggja niður þar sem trú er og verður einkamál hvers og eins að mínu mati. Kirkjur mega svo sem líka vera til fyrir mér á meðan ég þarf ekki að standa straum af kostnaðinum.
Svartinaggur, 12.6.2007 kl. 20:17
Ásta: Mér finnst kannski ekki alveg hægt að miða saman bænum sem eru skilyrtar og þeirra sem eru það ekki
Bænir eru bara hugsanir og það eru sumir vísindamenn sem aðhyllast hugsanaflutning og tilraunir hafa verið gerðar á því sviði. Það er hægt að byggja upp jákvætt andrúmsloft eins og neikvætt við þekkjum það öll. Síðan eru margir sem segja að tengslin á milli móður og barns séu oft svo sterk að ef barnið er í vandræðum í öðru landi sem dæmi, verði móðirin óróleg. Sjálf þekki ég vel bænaiðkun og hef mína trú en er mjög víðsýn. Að hugsa fallega til þeirra sem líður illa er gott að mínu mati. Eins og það er slæmt að velt sér uppúr vandamálum annarra og fara að líða illa yfir því. Læknar segja sem dæmi oft við fólk sem er að takast á við erfiða sjúkdóma að reyna að vera jákvætt og trúa því besta. Líkamanum virðist ganga betur að vinna á meinum ef hann er örvaður á jákvæðan hátt, enda eru frumurnar sem ráðast gegn meinum þá á fullu. Allavega vildi ég að meiri rannsóknir væru gerðar á hugarorkunni
Varðandi þróunaraðstoð kristinna, þá er ég þér alveg sammála. Ljótt mál. Ég get alls ekki séð að kristniboð hafi gert neitt gagn í Afríku nema síður sé, þó er búið að stunda það mjög lengi, eitthvað yfir 100 ár í það minnsta.
Doctor: Góð hugarorka er gagnleg fyrir alla
Það er til dæmis ekki góð hugarorka/bæn að biðja fyrir fólki sem er samkynhneigt um að það verði gagnkynhneigt. Ég sjálf bið um að jákvæðir og góðir hlutir gerist hjá fólki en ekki um eitthvað sem raskar sköpuninni. Ég ákveð ekki hvað fólki er fyrir bestu. Sendi bara góðar hugsanir og vona það besta. Annars gildir bara að vera almennileg manneskja og án fordóma að mínu mati
Þannig fólk hefur góð áhrif, trúað eða ekki trúað.
Knús til allra
Margrét St Hafsteinsdóttir, 12.6.2007 kl. 20:22
Ekki myndi ég biðja um að samkynhneigðir yrðu gagnkynhneigðir, mér finnst þetta bara krydda tilveruna.
Ef ég mætti biðja um eitthvað þá væri það að ofsatrúarliðið læknaðist og yrði normal... það er einhver rosaleg óhamingja sem býr í þessu fólki og þessi óhamingja brýst út á þennan líka leiðinlega máta, hvergi friður fyrir ofstopanum og yfirgangnum í þeim.
Peace
DoctorE (IP-tala skráð) 12.6.2007 kl. 21:09
Ég er alveg sammála þér Margrét að jákvæðni er til góðs. Ég tengi það bara ekki bæn. Eins og ég nefndi áður, hafa verið gerðar rannsóknir á bæn, það er að maður beri fram ósk við æðri máttarvöld og rannsóknir sem hafa verið gerðar vísindalega, sýna að það hefur ekkert að segja. En að vera jákvæður og reyna að sjá það besta við aðstæðurnar er allt annað mál. Eins og þeir segja í Svíþjóð " Det är inte frågan om hur man har det, utan hur man tar det." Eða að það skiptir ekki máli hvernig maður hefur það, heldur hvernig maður tekur því. Annars má fólk vera trúað mín vegna, á meðan það skaðar ekki aðra. Það hafa bara gerst hrottalegir hlutir, eins og foreldrar sem fóru ekki með barnið sitt til læknis, heldur létu söfnuðinn biðja fyrir því. Barnið dó. Það er alvarlegur hlutur þegar verið er að ljúga að fólki að bæn virki. Það gæti gerst að einhver trúi því. En á meðan ekki er verið að fara illa með annað fólk vegna trúmála, þá má fólk vera trúað mín vegna. 90% af þeim Íslendingum sem eru trúaðir eru o.k. að mínu mati. Þeir kannski fara með bænirnar sínar til öryggis, það gæti verið að það hjálpi, en það eru fáir sem leggja eitthvað traust á það. Það eru örugglega ekki nema 10% kristna á Íslalndi sem reyna að stjórna öðrum með hjálp trúarbragða. Síðan er þetta grafalvarlegt mál, þegar trúaðir eru farnir að boða sköpunarsögu biblíunnar af alvöru. Það er náskylt þessu með bæn, sumt fólk fer að trúa þessu.
Ásta Kristín Norrman, 13.6.2007 kl. 01:40
Margrét, það er ekki neinn mælikvarði á það að fólk sé trúaðra þó það sé í bænahringjum, hver og ein manneskja er á sinni þroskabraut og velur þær leiðir sem það vill fara. Mér finnst það vera mikil alhæfing að segja að allir þeir sem ræka trú sína hjá trúarhópum eins og t.d. þjóðkirkjunni og lesi biblíuna og fylgi boðskap hennar séu á villigötum. Við Íslendingar höfum ekki minni þörf fyrir nunnurnar en annað fólk, þó svo okkur skorti ekki mat og klæði þá skortir okkur oft ekki síður andlegan styrk og leiðsögn. Ég t.d. var í kvöld á St. Jósepsspílala þar sem kærleikur nunnana sem reistu þann spítala liggur í loftinu. Við erum ekki í aðstöðu til þess að dæma hvaða verk eru þörf eða ekki þörf, ekki viltu sjálf láta flokka þína köllun niður í óþarfa, mér finnst þú hér gera þig seka um fordóma sem þú sjálf skrifa svo mikið á móti á þinni síðu.
Ester Sveinbjarnardóttir, 13.6.2007 kl. 06:10
Doctor: Sammála þér.
Ásta: Ég held við séum alveg sammála ef út í það er farið
varðandi öfgana. Fráleitt að fólk fari ekki með börnin sín til læknis ef þau eru veik og treysti á fyrirbænir. Bókstafstrúarfólk og öfgatrúaðir eru mjög uppteknir af kraftaverkalækningum eins og það er kallað og er það beinlínis hættulegt. Þegar trúin tekur fram fyrir hendurnar á skynseminni er eitthvað mikið að. Jákvæðni er ástand sem við byggjum upp með hugsunum og atferli. Sumir nota bænir til þess að líða betur eða biðja fyrir öðrum og fullt til af fólki sem gerir það án þess að að hyllast bókstafstrú eða öfgatrú. Staðreyndin er að það hafa ekki verið gerðar nógu miklar rannsóknir á þessum málum og vildi ég sjá miklu fleiri rannsóknir vera gerðar í dulsálarfræði sem dæmi.
Ester: Hvar var ég að alhæfa um þessi mál? Mér finnst ekkert að því að fólk lesi biblíuna. Biblían er góð bók, en það er túlkun öfgatrúaðra á henni sem er hættuleg og þeir fjötrar sem fólk hneppist í. Veit að það eru margir sem bera mikla virðingu fyrir nunnunum og því sem þær gera. Ég hefði þó viljað sjá þær nunnur sem eru hérna núna meira úti í samfélaginu heldur en að lifa í svona mikilli einangrun. Ég man sjálf eftir nunnum frá því ég var á sjúkrahúsi sem barn og voru þær að annast okkur krakkana og mér fannst það allt í lagi að mestu. Þær voru flestar mjög góðar við okkur, en ein og ein var ströng og ekki fannst mér það gott þegar verið var að eiga við veik börn. Nunnur eru bara fólk eins og ég og þú og það er páfinn líka. Það er enginn einn öðrum æðri þótt margir álíti það. Allir eru jafnir fyrir Guði. Ég hef heldur ekki fengið neina "köllun" eins og þú nefnir það og margir halda því fram að þeir hafa fengið frá Guði. Mér finnst ég hvorki meiri manneskja eða minni manneskja en nokkur annar. Mér finnst ekki starf nunna á nokkurn hátt háleitara en starf einhvers annars nema síður sé. Það er þessi aðskilnaður sem "trúaðir" standa fyrir sem pirrar mig. Telja sig meiri manneskjur og nær Guði heldur en fólk sem hefur aldrei lesið biblíuna og jafnvel aðhyllist enga trú en er góðar manneskjur og gera vel. Trúarbrögð eru oft hin versta aðskilnaðarstefna.
Knús til allra
Margrét St Hafsteinsdóttir, 13.6.2007 kl. 12:41
Ég verð að segja það að ég hef ekki rekið mig á það að trúað fólk telji sig yfir aðra hafna eða nær guði en annað fólk, heldur þvert á móti umburðarlynt gagnvart náunganum. Vissulega eru margir sem telja sig trúaða en eru það ekki og finnst að þeir standi æðra öðrum.
Ég las það um daginn að nemandi í heimspeki átti að svara því hvort frysi í helvíti eða hvort það væri hiti og einnig hvort það færi fleira fólk til helvítis en himnaríkis. Hann benti á það að þar sem trúarbrögðin segja það að þeir menn sem ekki stunda þau einu sönnu trúarbrögð (Hvaða nöfnum sem þau nefnist) færu til helvítis þá færu allir menn til helvítis. Því má segja að það sé yfirfullt í heilviti og hitin af öllu fólkinu sem þar væru hitaði upp helvíti og gerði það heitt, hafi verið frost fyrir. En aftur ef það er takmarkað pláss í helvíti þá mætti leiða að því líkum að fólk kæmist ekki þar inn og yrði að fara til himnaríkis. Því mætti leiða rökum að því að allir menn færu til himnaríkis.
Ester Sveinbjarnardóttir, 13.6.2007 kl. 14:49
Sæl Margrét, hvað ég dáist að þér, þú ert ótrúlega seig í baráttunni!
Mikið væri það nú fyndið ef uppvakningarnir frá myrkum miðöldum, en svo kalla ég svörtu trúarofstækismennina, myndu fara í aftrúarofækismeðferð! Treysti vel Doctornum til að hanna hana og leiða ... hehehe... Hvernig ætli hún fari fram? Eitthvað svipað og afhommunaraðferðir ofsatrúarhópa? Loka ofsatrú inní skáp og láta mönnum verða óglatt þegar þeir finna til trúarofstækishneigðar?
Viðar Eggertsson, 13.6.2007 kl. 15:01
Ester: Ég held við séum alveg að tala um sömu hlutina í raun. Ég er að tala um öfgatrúaða og bókstafstrúarfólk
Biblían og önnur trúarrit eru hættuleg í túlkun öfgamanna. Helvíti er ekki bókstaflegt og góðir þessir punktar frá þér. Takk.
Viðar: Takk
Já það er talsverð seigla í mér, þessari rólegu manneskju
Fjölskyldan og vinirnir segja að ég sé heilsteypt, hrein og bein og andlega sterk og kannski er eitthvað til i því hjá þeim
Ég er allavega með ríka réttlætiskennd svo mikið er víst.
Já það ætti að leyfa trúarofstækisfólkinu að finna fyrir því hvað það er búið að beygja og brjóta marga fyrir það eitt að vera samkynhneigðir. Fáum endilega doctorinn í að hanna svona meðferð eins og þú ert að tala um, allt í lagi að prófa
þótt ég vilji engum illt og alls ekki beita þeirri kúgun og ofbeldi sem ofstækisliðið beitir í nafni Guðs og syngur hallelúja undir.
Knús til allra
Margrét St Hafsteinsdóttir, 13.6.2007 kl. 16:24
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.