16.11.2011 | 03:33
Drengurinn er hetja!
Mér finnst persónulega að strákurinn sem þessi ömurlegu karlar níddust á sé í raun sannur karlmaður og hetja. Hann leggur í það að kæra þessa karla og fara í gegnum það ferli sem felst í því að kæra mál af þessu tagi og standa á sínu. Það þarf dug til þess. Hann er greinilega haldinn ríkri réttlætiskennd og er mikið í mun að honum sé trúað. Vonandi líður honum betur eftir að dómur er fallinn í málinu. Það er ekki heiglum hent að berjast fyrir réttlæti. Hann er búinn að koma af stað umræðu og vitundarvakningu í þjóðfélaginu.
Þótt ég trúi því ekki að svona níðingsskapur viðgangist á skipum almennt, þá veit ég að þetta er ekki eina tilfellið. Ég veit um mann sem er á miðjum aldri í dag, sem varð fyrir hrottaskap í veiðiferð sem hann fór í kornungur, þar sem einhverjir skipsverjar sveifluðu honum yfir borðstokkinn á skipinu hvað eftir annað og héldu um fæturnar á honum. Eftir þessa hryllingsferð var hann í svo miklu áfalli að hann fór að stama og gerir enn í dag, að því er ég best veit.
Þegar maður les dóminn í málinu sem fjallað er um í fréttinni, sér maður að hátterni karlanna á skipinu myndi flokkast undir perraskap eins og það er kallað á góðri íslensku. Ef maður viðhefði þessa tilburði á almannafæri og væri að áreita börn með því að bera sig m.a. fengi hann þyngri dóm. Það vegur kannski þyngra ef slíkir atburðir eiga sér stað á fastlendi heldur en til sjós.
Ég óska drengnum og fjölskyldu hans alls hins besta.
|
Níddust á 13 ára dreng í veiðiferð |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
Stjórnmál og samfélag | Breytt 17.11.2011 kl. 16:03 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (7)
19.6.2011 | 20:52
Druslugangan - Nei takk
Þótt ég sé kona og líður vel sem konu og sé algjörlega á móti ofbeldi og kúgun hvers konar, þá ætla ég ekki að fara í svokallaða DRUSLUGÖNGU sem verður í júlí. Ég myndi hiklaust fara ef gangan væri til að mótmæla ofbeldi hvers konar og/eða til að sýna fórnarlömbum af báðum kynjum stuðning.
Þessi kvenfrelsis mál hér á Íslandi eru svo skrítin. Það er eins og það megi alls ekki tala gegn konum og vondum verkum þeirra. Þegar þannig mál ber á góma, er kona sem er gerandi í ofbeldismálum oftast stimluð fórnarlamb. Það eru svo margir sem vorkenna konum sem eru gerendur. En fáir sem vorkenna karlmönnum.
Í Bretlandi hafa komið upp undanfarin ár nokkur alvarleg mál sem tengjast kynferðisofbeldi á börnum, þar sem konur eru gerendur. Málin hafa verið hrikaleg og gerendur sýnt af sér ótrúlega grimmd og mannvonsku. Þar hafa líka komið upp mál þar sem mæður verða börnum sínum að bana og mörg önnur hrikaleg ofbeldismál þar sem konur eru gerendur. Svo maður tali nú ekki um öll málin í Bandaríkjunum og víða þar sem konur eru gerendur í ofbeldismálum.
Hér á Íslandi eru karlmenn sem verða uppvísir af ofbeldi hvers konar teknir og dæmdir til hengingar af dómstóli götunnar, sem gjarnan horfir mjög einhliða á þannig mál. Þeir eru beinlínis hinir ógeðslegustu á allan hátt og eiga helst af öllu að rotna í gluggalausum fangaklefum, án neinna tenginga við umheiminn. Það er alveg sama þótt umræddir karlmenn eigi fjölskyldu og ástvini sem elska þá og eru harmi slegnir, svo dæmi séu tekin.
Það er líka mjög skrítið hversu mikið tabú það er á Íslandi, landinu þar sem í raun konur ráða stefnu í þessum málum, að ekki megi tala um og fjalla um heimilisofbeldi af hálfu kvenna. Rannsóknir erlendis sýna að það er ekki síður konur en karlar sem beita börnin sín ofbeldi, þótt ljótt sé frá að segja.
Þar sem ég er svo hrifin af karlmönnum
, þá hef ég lagt mig í líma við að kynnast þeim og ræða við þá um þessi mál og tilfinningamál þeirra. Mér hefur oft brugðið þegar ég hef heyrt þá segja, ef þeir eru ekki alveg í takt við það sem þykir rétt hegðun hjá þeim, að þeir upplifi sig vonda menn og líður illa vegna þess. Þeir eru sífellt að níða sjálfa sig vegna þessa og tilfinningaheimur þeirra kominn í óreiðu, af því að þeir standa sig ekki sem skyldi á einhverjum sviðum. Hér er ég líka að tala um karlmenn sem eru að berjast við þetta daglega amstur eins og allir. Lenda í skilnuðum, skuldum, forræðisdeilum o.s.frv.
Það skilar engum árangi í mannréttindamálum, ef annað kynið/karlmenn verður stanslaust fyrir árásum um hversu ómögulegir þeir séu. Að barátta gegn ofbeldi snúist svona mikið um kynbundið ofbeldi, þ.e. ofbeldi gegn konum er engan veginn að skila sér. Konur verða líka að taka á sig ábyrgð ef þær vilja sönn mannréttindi. Það er hreinlega ömurlegt hversu harkalega er vegið að karlmönnum oft og tíðum. Það eru drengir þarna úti, litlir strákar, ungir menn, sem verða fyrir áhrifum af þessu. Er það jafnrétti? Er það lausnin?
Ég persónulega hef engan áhuga á því að vera í einhverju fórnarlambs hlutverki af því að ég er kona, eins og svo margar konur eru. Ég er stolt af því að vera kona, stolt af því að vera móðir, stolt af sonum mínum, föður mínum, móður minni, systrum og öllu því fólki sem ég hef kynnst á lífsleiðinni, hvort sem það eru konur eða karlmenn sem hafa litað líf mitt.
19.6.2011 | 01:47
Mega strákar ekki vera með bleikar regnhlífar?
Ekki alls fyrir löngu var ég stödd á útihátíð og stóð þar í sölutjaldi við borð sem seldi allskonar dót fyrir krakka. Lítill gutti með snuð, svona 2ja ára, lallaði sér að borðinu og horfði þar með aðdáun á ofboðslega fallegar og krúttlegar bleikar regnhlífar fyrir "krakka" sem voru til sölu. Hann kallaði á mömmu sína, sem var þarna rétt hjá og benti á bleiku regnhlífarnar og sagði:
- Langa fá sona!
Mamma hans þreif hann upp og sagði með hálfgerðum snúð:
- Þú færð ekki "bleika" regnhlíf!
Svo snéri hún sér frá borðinu, en litli drengurinn horfði ennþá með aðdáun yfir öxlina á henni á bleiku regnhlífarnar og eins lengi og hann gat á meðan mamma hans gekk með hann í burtu.
23.1.2011 | 18:43
Heimilislaus maður
Ég var hikandi að skrifa þetta blogg vegna þess að mig langar ekki að fá yfir mig hvað við íslendingar eigum erfitt núna og allt það og að ég sé bara að láta plata mig........en......
Þannig er mál með vexti, að ég er á Twitter eins og svo margir og þar er í fylgjenda hópnum mínum, listamaður, ljósmyndari og málari sem frá Chicago, sem er orðinn heimilislaus. Hann komst í fylgjenda hópinn minn af allt öðrum ástæðum, en við deilum sama áhugamáli.
Hann fór að senda pósta eða "Tweet" um það að hann væri kominn á götuna í Chicago. Hann hafði misst íbúðina sem hann bjó í og listaverkasalinn sem seldi fyrir hann fór á hausinn, svo hann missti líka allar tekjur. Þar fyrir utan er hann "bipolar" semsagt með svokallaða geðhvarfasýki.
Hann á 7 ára gamla dóttur með fyrrverandi konu sinni. Hann hittir dóttur sína alltaf á sunnudögum. Eftir að hann og kona hans skyldu tók hann upp samband við unga konu einhverju seinna sem var í miklu ójafnvægi að hans sögn. Fyrir rétt tæpu ári síðan þá svippti þessi unga kona sig lífi. Eftir það segir hann að þá hafi hann endanlega alveg misst tökin á tilverunni.
Hann sendir pósta á Twitter um það hvernig hann er að arka á milli gistiskýla "shelters" fyrir heimilislausa, til að reyna að komast inn í hús nótt og nótt. Oft hefur honum verið vísað frá og fleirum sem eru heimilislausir vegna þess að allt er fullt. Þá verður hann bara að ganga um göturnar og reyna að deyja ekki úr kulda. Stundum fer fólk sem er heimilislaust á flugvöllinn til að komast í skjól, ef það er ekki rekið í burtu. Eitt skipti var einhver góður flugvallarstarfsmaður sem leyfði nokkrum heimilislausum að koma inn og vera yfir nótt og sofa á gólfinu í biðsal.
Þessi maður á ennþá símann sinn sem hann sendir skilaboð á Tweet úr. Stundum kemst hann í tölvu, en það eru staðir víða í USA með aðgangi að tölvum frítt eða fyrir lítinn pening.
Eitthvað hefur vinum hans á Twitter tekist að aðstoða hann, m.a. með því að senda honum kuldaskó.
Hann sagði mér þegar ég spurði hann um líf hans í einka skilaboðum, að hann hefði einhvern veginn misst bara tökin á öllu og að enginn hjálpaði honum lengur. Fjölskyldan hans reyndi ekki einu sinni að hjálpa honum þótt hann væri heimilislaus. Undanfarin ár hefði hann misst samband við vini sína einn af öðrum.
Hann hefur reynt að fá aðstoð frá hinu opinbera síðan hann varð heimilislaus, en hann fær enga peningaaðstoð af því hann fellur ekki undir þá skilmála sem því fylgja og ekki heldur fær hann neina lyfja- eða læknisaðstoð vegna þess. Hann veiktist fyrir nokkrum dögum af einhverjum vírus sem heimilislausir veikjast oft af, hann lenti á bráðamóttöku og var þar í einn dag, og svo þurfti hann að fara út aftur, veikur. Hann fékk inni hjá einhverjum "vini" í nokkra daga á meðan hann er að jafna sig, en hann leyfði honum að vera í kjallaranum og þar er hann einn og enginn virðist skipta sér af honum og hann er ennþá veikur, en eitthvað smá að hressast.
Hann fékk loksins eftir langa bið svokallaða "foodstamps" svo hann gæti keypt sér að borða og borgað með matarmiðum. Þegar hann ætlaði að kaupa sér heitan mat í marvörubúð sem seldi slíkt, var honum sagt að það mætti ekki afhenda heitan mat úr á matarmiða! Semsagt heimilislaust fólk á að hita sér mat .........hvar?
Hann segist ekki eiga við áfengis- og eiturlyfjavandamál að stríða, en það sé erfitt fyrir hann að fá vinnu, sem hann er stöðugt að reyna, af því að hann er heimilislaus og með geðhvarfasýki, sem hann vill að vinnuveitandi viti um, hvort sem hann er í jafnvægi eða ekki.
Þessi maður er fæddur 1966. Mér finnst bara ömurlegt að enginn hjálpar honum. Hverslags kerfi er þetta eiginlega í USA? Ömurlegt hvernig farið er með fólk þar og fólki bara hent á götuna ef það getur ekki staðið sig af einhverjum örsökum.
Það er ca. mánuður síðan hann varð heimilislaus og núna er hann farinn að tala um sjálsvíg, en það eina sem stoppar hann sé stelpan hans, sem nb. hann getur ekki gert mikið fyrir þar sem hann á ENGA peninga.
Hann var búinn að setja upp síðu með eitthvað af verkum sínum og hefur undanfarna daga verið að reyna að fá fólk til að kíkja og kannski kaupa af honum eftirprentun, en síðan er langt því frá komin almennilega á skrið, en hér er slóðin.
http://www.artwithoutfear.comÞað er alveg hrikalegt að fá það svona beint í æð hvernig það er að vera heimilislaus í raun. Oft hefur maður verið að spá í hvað það er ömurlegt að það skuli vera svona mikið af heimilislausu fólki í heiminum, og þá sérstaklega í USA sem á nú að kallast þróað ríki. Það er til skammar hvernig er staðið að svo mörgu þar, hvað varðar mannréttindi og mannvirðingu.
Ég var svo bjartsýn um daginn að ég fór í banka og ætlaði að kaupa nokkra dollara til að senda manninum, en NEI, ekki hægt vegna gjaldeyrishaftanna, ekki einu sinni einn dollar. Ég get ekki heldur lagt inn á reikning í USA. Verð að vera með farseðil til að fá gjaldeyri.
En ef ég ætti pening, þá myndi ég fara út til Chicago, taka íbúð á leigu fyrir þennan mann og hjálpa honum eins og ég gæti og fyrir utan það ef ég væri mjög efnuð þá myndi ég svo sannarlega aðstoða fólk í svona miklum erfiðleikum. Það er skylda okkar.
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 18:48 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
3.1.2011 | 21:03
INSPIRED BY BJORK nr. 1 á Etsy!
Langar að deila því með fólki að ég setti saman lista, svokallaðan Treasury List á Etsy handverks- og listmunasíðunni risastóru þar sem ég er með eitthvað af handverkinu mínu. Það eru ca. 14.000 listar í gangi hverju sinni og ég lenti í fyrsta sæti með listann sem ég setti samann. Listinn heitir: INSPIRED BY BJORK og er með sýnishorn frá listamönnum og hönnuðum sem Björk okkar veitir innblástur á einn eða annan hátt. Endilega klikkið á slóðina, og svo á einn til tvo seljendur, svo við höldum nú fyrsta sætinu um tíma 
http://www.etsy.com/treasury/4d213d6313a68eef24907a43/inspired-by-bjork
Þið getið líka skrá ykkur á Etsy til að geta skrifað "comment" við listann, en allavega skoða og klikka á seljendur og deila á Facebook ef þið getið. Gaman að þessu 
Hér er síðan mín á Etsy:
23.12.2010 | 02:55
Nútíma texti við gamalt jólalag - Og allir syngja með!
nú eru að koma jól
Sigga er sér alveg að sleppa
í oggulitlum kjól.
Pabbi er í eldhúsinu
og honum er svo heitt.
Rauðvín þambar og í sósu hellir
og sparar ekkert neitt.
Mamma hún í ógnarbasli
á með dressið sitt.
Fljótur Siggi faldaðu núna
nýja pilsið mitt!
Kötturinn er svo undirförull
í búrinu lepur skjótt
dýsæta súpu í bolluskál
sem yljar honum fljótt.
Jólatré í stofu stendur
í slifur gráum lit
Afi gamli í sófa situr
og bara alveg bit.
21.12.2010 | 16:13
Ekki opið réttarhald í viðkvæmum málum
Ég er algjörlega á móti opnu réttarhaldi í svona viðkvæmu máli. Aðstandendur sakbornings og fórnarlambs eiga bara að geta verið viðstödd. Ég skil ekki hvaða tilgangi það þjónar í raun að hafa réttarhald opið þegar svona ömurleg mál eru tekin fyrir. Sakborningurinn í málinu er greinilega alvarlega skertur á geði. Það hlýtur að vera þungbært fyrir fjölskyldu hans að ganga í gegnum þetta allt og hvað þá í opnu réttarhaldi. Sorg og harmur aðstandenda fórnarlambsins er óbærilegur og mín skoðun er sú að það sé engin lausn fyrir þau að hafa opið réttarhald þótt þau vilji það sjálf.
Þegar svona hryllilega mál koma upp, verður að hlúa sérstaklega vel að aðstandendum þolanda og geranda, sem alltaf eru í miklu áfalli og sorg. Þá þarf að velja skynsamlegar leiðir til lausna, en ekki leiðir sem ýta undir úlfúð, hatur og enn meiri sorg.
Ég þekki sjálf persónulega til fjölskyldna sem hafa bæði verið aðstandendur þolanda og geranda í svona viðkvæmum málum. Fjölskyldur beggja aðila brotna. Þetta er harmleikur tveggja fjölskyldna.
http://www.mbl.is/mm/frettir/innlent/2010/12/21/rettarholdin_verda_opin/?ref=fphelst
20.12.2010 | 18:43
Of mikið væl?
Mér finnst að þeir þingmenn í stjórn sem ekki standa með ríkisstjórninni í mikilvægum ákvarðanatökum og eru oft upp á móti því sem er verið að reyna að gera til að koma landinu á réttan kjöl aftur, ættu bara að hætta þessu væli.
Mér finnst orðið full langt gengið þegar þingmaður í stjórn er farinn að draga að sér svona mikla athygli, verandi í VG og farinn að halla sér svona ískyggilega mikið til hægri með því nánast að vera kominn í faðm Sjálfstæðisflokksins.
Ríkisstjórnin hefur staðið sig mjög vel miðar við allt og allt. Þrátt fyrir að margir séu endalaust að níða stjórnina og gera lítið úr öllu sem hefur verið gert, breytir það því ekki að ríkisstjórnin hefur unnið ötullega að því að koma okkur út úr hruninu, þrátt fyrir að sumir láta í veðri vaka að ríkisstjórnin reyni að koma okkur í enn meira óefni, eins gáfulegt og það nú hljómar 
Hættið að væla, verið jákvæð og horfið björtum augum til framtíðar.
Lífið heldur áfram.
|
Stöðugir níðpóstar um Lilju |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
21.9.2010 | 01:14
Veskið sem ekki var stolið
Það er talsvert í umræðunni hér á landi að mikið af þeim útlendingum sem koma til landsins séu meira og minna þjófar og að erlend þjófagengi vaði hér uppi. Ég er nú samt ekki viss um hvort að íslendingur hefði endilega sýnt af sér eins mikinn heiðarleika og ung erlend kona sýndi í dag.
Ekki löngu eftir að ég kom heim seinnipartinn, var dyrabjöllunni hringt. Fyrir utan stóð ung ljóshærð kona. Hún spurði mig á bjagaðri íslensku með pólskum hreim, hvort ég héti Margrét Hafsteinsdóttir. Þegar ég játti því hálf hikandi, því ég vissi ekki hvað hún vildi, spurði hún mig hvort ég ætti ekki peningaveskið sem hún hélt á og sýndi mér. Hún sagðist hafa fundið það fyrir utan blokkina á bílastæðinu. Ég sá að þetta var mitt veski og varð mjög undrandi, því ég var ekki farin að fatta það að ég hefði misst veskið á leiðinni inn. Ég þakkaði ungu konunni að sjálfsögðu kærlega fyrir og vildi endilega fá að borga henni fundarlaun, því það voru peningar í veskinu sem ekkert hafði verið snert á og allt á sínum stað. Unga konan harðneitaði fundarlaunum, brosti bara og ætlaði að ganga í burtu, en þá gekk ég til hennar og knúsaði hana.
Mér skildist á henni, þegar hún var að reyna að útskýra fyrir mér hvar hún hefði fundið veskið að hún byggi í götunni, og nú verð ég að reyna að hafa upp á henni, svo ég geti fært henni blóm eða konfekt. Því hún var flogin, vinkandi með bros á vör áður en mér tókst að spyrja hana.
Svo gott að finna fyrir heilindum og heiðarleika þessa dagana.
12.9.2010 | 01:39
Albert Einstein og dulúðin
Fallegasta og djúpstæðasta upplifunin er skynjun dulúðarinnar. Það er sáðmaðurinn í öllum sönnum vísindum. Fyrir þann sem þekkir ekki þessa tilfinningu, sem getur ekki lengur undrast og staðið frá sér numinn í lotningu, er svo gott sem dauður. Að vita að það sem er okkur óútskýranlegt skuli í raun vera til, sannar sig sjálft eins og hin æðsta speki og hin mest geislandi fegurð sem okkar daufa hugarstarfsemi getur aðeins skilið í sínu vanþróaða formi - þessi þekking, þessi tilfinning er miðja hinnar sönnu trúrækni. (Albert Einstein - The Merging of Spirit and Science)
The most beautiful and most profound experience is the sensation of the mystical. It is the sower of all true science. He to whom this emotion is a stranger, who can no longer wonder and stand rapt in awe, is as good as dead. To know that what is impenetrable to us really exists, manifesting itself as the highest wisdom and the most radiant beauty which our dull faculties can comprehend only in their primitive forms - this knowledge, this feeling is at the center of true religiousness. ( Albert Einstein - The Merging of Spirit and Science)
8.9.2010 | 01:47
Verð ég að vera kurteis þegar ég skrifa um trúmál?
Má ég ekki vera hörð og gagnrýnin í skrifum um trú og trúmál, þegar trúaðir margir hverjir leyfa sér allskonar svívirðingar og fordóma sem beinlínis eru hættulegir? Verð ég að vera kurteis þegar mér er misboðið og réttlætiskennd minni svíður undan fáránleikanum sem fær að vaða uppi og hefur verið innrættur fólki að sé eitthvað heilagur og fallegur, þegar á bak við liggur grimmd og fordómar?
Vissuð þið það að búddistar sjá kristin trúarbrögð sem herská trúarbrögð og sjá að slóð þeirra er blóði drifin. Þau segja kristna trú byggða á þjáningu. Ég er algjörlega sammála þeim. Þessi kristna trú er bara bull frá a-ö og hana nú.
7.9.2010 | 01:18
Einelti eða skynsemi?
Nú eru farnar að heyrast háværar raddir í prestum Þjóðkirkjunnar og öðrum sem hana vilja verja, að kirkjan sé lögð í einelti og að fjölmiðlar hafi beinlínis stutt það og því hafi svo margir skráð sig úr henni undanfarið.
Þetta skrautbákn sem Þjóðkirkjan er, sem hefur tekið sér vald langt út yfir allt sem henni ber að gera, sem er auðvitað að þjóna söfnuði sínum, hefur sjálf í krafti öfgatrúaðra sem hana styða, stundað einelti öldum saman.
Fyrir það fyrsta hefur þetta bákn staðið mannréttindum fyrir þrifum. Hversu háværar hafa raddirnar ekki verið sem hafa komið þaðan þegar málefni samkynhneigðra ber á góma? Sumir þjónar þessarar stofnunar hafa beinlínis oft og tíðum lýst óbeit sinni á samkynhneigðum og þannig lagt ákveðinn þjóðfélagshóp í einelti. Ennþá eru rokur að koma þaðan vegna málefna samkynhneigðra og nýlegra löngu tímabærra laga um að sá þjóðfélagshópur eigi að njóta sömu mannréttinda og aðrir varðandi hjónabönd.
Kynferðisafbrotamál innan kirkjunnar hafa komist í hámæli og ömurlegar frásagnir fórnarlamba af samskiptum sínum við þjóna hennar.
Innan báknsins finnast líka frábærir þjónar. Fólk sem vill vel og hefur skilning langt út fyrir mörk trúarbragðanna, sem ef út í það er farið, eru afturhaldssöm og beinlínis mannskemmandi ef litið er á bókstafinn sem lög.
Kirkjan þarf að endurnýja sig og uppfæra. Þjónar kirkjunnar sem vilja viðhalda víðsýni og gera allt til að aðstoða fólk án skilyrða, ætti að draga sig út úr þessu bákni og stofna nýja kirkju.
Einhvers staðar stendur að vald spilli. Kirkjan er orðin spillt, af því hún hefur fengið allt og mikið vald í þjóðfélaginu og beinlínis verið dekruð.
Aðskilnaður ríkis og kirkju verður að komast í framkvæmd. Það fólk sem hefur áhuga á að vera í trúarsöfnuði á að gera það og styrkja hann með framlögum fyrir utan sóknargjöldin ef þörf er á. Aðrir sem vilja ekki vera í trúarsöfnuði og vilja standa fyrir utan, eiga sjálfir að ákveða hvert upphæðin fer sem nemur sóknargjöldum. Það sem Þjóðkirkjan hefur fengið af skattpeningum þjóðarinnar, umfram sóknargjöldin, er gríðarlegar upphæðir. Það er beinlínis skömm að því að fólk skuli vera neytt til að borga til trúarsafnaðar af sköttum sínum.
Við erum komin inn í 21. öldina og ættum að fara að líta á okkur sem upplýstar verur og haga okkur í samræmi við það. Afturhald trúarbragðanna má ekki lengur fjötra okkur.
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 01:19 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (7)
5.9.2010 | 23:27
Vísindin vs Guð
Það er skemmtilegt hvað vísindum hefur tekist að sanna margt í gegnum aldirnar og árin. Vísindin hafa kynnt okkur fyrir stórstækum framförum og uppgötvunum, þ.e. það fólk sem starfar sem vísindamenn hverskonar. En aldrei hefur þessum alvitra, altumvitandi og getandi Guði sem svo margir þykjast geta talað fyrir og túlkað skv. ritningum trúarrita, tekist að sanna sig. Aldrei!!! Hvað er svona almáttugur Guð að gera, sem vill að allir elski sig og óttist líka að hugsa? Af hverju í andskotanum, kemur hann þessi gamli kall, ekki bara og sannar sig fyrst hann getur allt? Ég bara spyr? Hvað er svona Guð að stjórna heiminum ef það er satt sem trúaðir segja að hann geri, fyrst hann er svona gjörsamlega óhæfur? Af hverju er hann ekki bara rekinn, eins og hver annar óhæfur stjórnmálamaður, sem er orðinn sýktur af spillingu. Þessi Guð sem svo margir tala um, og þá sérstaklega það fólk sem les mikið trúarrit, er nefnilega ekkert annað en spilltur Guð.
Hann vill ekki sjá jafnrétti og bræðralag, því hann er svo hlynntur ölmusu og fátækt og á því nærist hann.
Hann dýrkar þrælahald, og þess vegna hefur örugglega þrælahald fengist að líðast hér á jörðu, hann blessar fátæka, og þess vegna þrífst fátækt.
Hann leggur fólk í einelti eftir kynhneigð og margir hafa látið lífið af þeim sökum.
Hann vill að konur séu undirgefnar og þáttur kvenna í hans ritum er mjög lítill, þess vegna verða konur fyrir miklu ójafnrétti.
Hann segist gera vel við þá sem eru honum þóknanlegir, þess vegna viðgengst misskipting o.s. frv.
Það er örugglega mikið af því fólki trúað sem græddi hér á tá og fingri á gróðærinu. Það hefur örugglega oft þakkað guði sínum áður en það fór að sofa, fyrir hvað hann var ofboðslega góður við það, og fundist það verðskulda svo miklu meira en aðrir sem áttu ekki neitt og fengu engin tækifæri. Það hefur örugglega afsakað fyrir sjálfu sér að guð væri með því í liði, fyrst það fékk öll þessi auðæfi, þrátt fyrir að í leiðinni hafi það traðkað á öðrum. Jú til að friða samviskuna, er líka hægt skv. ritningunum að gefa ölmusu hægri vinstri, og hjálpa fátækum með einhverjum framlögum. Þannig helst vítahringurinn sem þessum guði er svo þóknanlegur.
Mín skoðun er að heimurinn er orðinn illa spilltur af trúarinnrætingu, sem fylgir mikil misskipting. Það verður aldrei friður og hagsæld fyrir alla jarðarbúa fyrr en að þessi guð misskiptingar hættir að ráða yfir fólki, og fólk opnar augum fyrir þessum blekkingum.
Fólki hefur verið talin trú um að upplifun og tilfinning sé Guð og ofan í það er sullað innrætingu til að fólk skoði ekki betur upplifanir sínar og tilfinningar.
Fólk má ekki efast í trúnni, þá er hið illa að ráðskast með það skv. trúnni, í staðinn að skoða efa sinn og nota rökhugsun og hugsanir um mannúð...........og Búmm..........guð er farinn.
Það er í raun fáránlegt þegar við hugsum út í það án þess að vera með einhvern ótta, að þakka einhverjum Guði þegar okkur gengur vel eða höfum eignast eitthvað, en biðja hann svo að hjálpa sér þegar illa gengur. Við höfum eiginleika til að lyfta vitundinni upp og stíga út úr erfiðu hugarástandi og það er meðfæddur eiginleiki.
Það er hið sanna frelsi að losna undan fjötrum trúar. Því fylgir vellíðan, ekki vanlíðan og dýpri meðvitund fyrir lífinu.
2.9.2010 | 21:43
Eðlisfræði veitir svör við spurningum um tilurð heimsins
Hér koma nokkrir punktar varðandi spurningar og staðhæfingar um eðlisfræði hjá bloggurum varðandi þessa frétt um Stephen Hawking:
Einhver hélt því fram að það þyrfti atóm til að mynda massa
Það þarf ekki atóm til að mynda massa. Flest allar öreindir hafa massa. Í svartholum eru til dæmis engin atóm, heldur samfallið efni. Fyrstu atómin urðu til ca. 225 sek eftir Mikla - hvell.
Það þarf bara orku til að mynda þyngdarsvið, þótt atóm búi að sjálfsögðu yfir orku sem er t.d. fólgin í massa þeirra.
Fólk er líka að tala um "þyngdarafl" og hvað hafi skapað það
Þyngdarafl er ekki rétt að segja og á ekki við. Afl er orka á tímaeiningu og hefur lítið að gera með fyrirbærið sem við í daglega lífinu skynjum sem þyngdarkraft. Þyngdarafl er vinnan sem er unnin af þyngdarkrafti á tíma.
Massi skapar þyngdarkraft og þyngdarkrafturinn fylgir alltaf massanum. Svo massi Mikla-hvellsins gat skapað þyngdarkraftinn sem skapaði Mikla-hvell. Massi sveigir tímarúmið, en þar sem við getum ekki skynjað sveigjuna þá skynjum við í staðinn þyngdarkraft.
Varðandi það að spyrja út í það óendanlega, eins og margir trúaðir gera en reyna síðan ekkert að skilja eðlisfræði alheimins, en efast þó ekki sjáfir um eigin trúarsetningar og slangur, þá er þetta vitað:
Í alheiminum eru til ákeðnir alheimsfastar sem ekki er hægt að búa til úr öðrum eðlisfræðilegumföstum, sem dæmi ljóshraði. Úr þeim má búa til náttúrulegan lengdarskala alheimsins, sem er svo smár að við höfum enga leið til að skoða hann núna. Þar gæti legið leyndarmálið á bak við allt.
Þetta kemur beint frá eðlisfræðisnillingnum syni mínum, sem er aðeins tvítugur 
|
Ljóst að Guð skapaði ekki heiminn |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
30.8.2010 | 18:54
Af hverju stelur fólk?
Ég fer ekki ofan af því að þjófnaðir hafa aukist til muna á Íslandi undanfarin ár. Ég bý sem dæmi rétt hjá verslunarmiðstöð og veit fyrir víst að þjófnaðir þar hafa aukist. Afgreiðslufólk þarf að vera vel á varðbergi í verslunum, þegar hópar koma saman og reynt er að draga athygli afgreiðslufólksins frá hluta af hópnum á meðan hann ruplar og rænir. Mér skilst að fólk sé ansi djarft í þjófnuðunum. Mér skilst líka að verslunareigendur nenni stundum ekki að standa í því að tilkynna þjófnaði, þar sem það sé undantekning að þeir upplýsist.
Mér finnst líka grátlegt þegar fólk situr á kaffihúsi, bregður sér frá örfá skref til að fá sér ábót á kaffið og á meðan er kápunni stolið sem sett hefur verið yfir bakið á stólnum. Mér finnst líka grátlegt þegar fígúrur í görðum fólks fá ekki að vera í friði fyrir þjófum.
Það virðist vera þjófnaðarfaraldur á landinu. Ekki kannski skrítið, þegar hér hafa verið framin bankarán fyrir augunum á okkur og enn situr enginn í fangelsi vegna þess. Aftur á móti veit ég um mann sem fékk dóm fyrir að stela ostatertu úr verslun fyrir örfáum árum.
Hvað fær fólk eiginlega til að stela? Mér finnst þjófnaðir ömurlegir og að svo margir sjái hjá sér þörf til að stela frá náunga sínum án þess að blikna. Hvernig réttlætir fólk þjófnaði? Stundum eru þjófar fólk sem manni finnst alls ekki líklegt til að stunda þá iðju. En persónulega hef ég lent í því að gestir á mínu heimili hafa stolið frá mér, sem dæmi snyrtivörum. Einu sinni stal ákveðin manneskja frá mér maskara, sem ég var nýbúin að kaupa. Maskarinn var dýr og ég var mjög svekkt þegar honum var stolið. Ekki löngu seinna kom ég á heimili manneskjunnar sem hafði stoli maskaranum og lá hann þá á borði hjá henni innan um aðrar snyrtivörur. Ég tók ekki maskarann og sé eftir því enn í dag, því þessi manneskja átti eftir að stela fleiru frá mér.
Yngri sonur minn lenti í því í Laugum að skónum hans var stolið. Flottum adidas skóm. Þeir hurfu þegar hann fór í sturtu. Hann hafði sett þá undir skápinn. Sá þjófur var tekinn, talsvert seinna. Hann náðist á myndavél sem var sett upp í fataklefunum ýmsum til hrellingar, en gott á þjófinn.
Slæmt þykir mér þegar fólk stelur úr þvottavélum og þurrkurum í sameignum húsfélaga. Hvað hefur fólk að gera við nærfatnað annarra? Vinkona mín lenti í því að fullum þurrkara af nærfatnaði hennar, náttfötum og einhverju af handklæðum var stolið. Þetta var þvílíkt áfall fyrir hana að hún var lengi að jafna sig, enda var hún ekki vel stæð og gat ekki keypt þetta allt upp á nýtt. Sá þjófur náðist aldrei.
Ég hef lent í þvi að handklæðum hefur verið stolið frá mér af snúru í sameign. Síðan hef ég verið með þvottavél og þurrkara inni hjá mér og snúrur á svölunum.
Það er oft talað um það að þjófnaður sé mismikill eftir löndum. Erum við íslendingar í hópi þeirra landa þar sem mikið er um þjófnaði? Kannski þjófnaði sem aldrei eru tilkynntir?
|
Sagðist vera að gera við tölvuna |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |



andmenning
andres08
arh
astan
astroblog
audurproppe
benna
berg65
berglindnanna
bergthora
blekpenni
brandarar
braxi
bubot
cakedecoideas
domubod
drhook
eggmann
egillrunar
einarorneinars
ernafr
estersv
eyjann
fosterinn
frisk
gammon
gattin
gdh
geirr
georg
gudnyanna
gudrunmagnea
gullaeinars
gurrihar
halkatla
halo
heidah
helgaluthersdottir
hildurhelgas
hjaltirunar
hross
huldumenn
jaj
jarnar
jenfo
jenni-1001
jensgud
jogamagg
katrinsnaeholm
kiza
kjartan
krizziuz
ktomm
larahanna
larusg
laugatun
lehamzdr
leifurl
liljabolla
magnusthor
markusth
martasmarta
mediumlight
nimbus
nonniblogg
orvitinn
pallblondal
palmig
partners
peturhenry
polites
prakkarinn
rannveigh
robertb
saragumm
savar
siggith
sigurbjorns
sigurgeirorri
sindri79
skarfur
skessa
skinkuorgel
skonsan
steinibriem
stinajohanns
stjornuskodun
sunnadora
svanurg
svanurmd
svartfugl
svarthamar
svartinaggur
tara
tofraljos
tryggur
vantru
vefritid
veravakandi
vest1
vga
vitale
what
yngvii
zeriaph
baldurkr
evropa
curvychic
naflaskodun
kt
sattekkisatt
thorthunder
tryggvim
valgardur
thorsteinnscheving




